Hraunborgir

Vefsíða: https://www.facebook.com/thjonustumidstodin.hraunborgum
Netfang: hraunborgir@simnet.is
Farsími: 486 4414

Á tjaldsvæðinu er góð hreinlætisaðstaða ásamt góðu aðgengi fyrir fatlaða. Þar er góð snyrtiaðstaða með heitu og köldu vatni og útivask. Þar er aðgangur að rafmagni. Í þjónustumiðstöðinni Hraunborgum er “þvoið sjálf þjónusta” , þvottavél og þurrkari. Tjaldstæðið er alveg við þjónustumiðstöð Hraunborga. Á svæðinu er fjölbreytt afþreying í boði t.d. sundlaug, golfvöllur, mini-golf, körfuboltaaðstaða, leiktæki fyrir börn, leikherbergi, sjónvarp og útsýnisskífa.
Svæðið er mjög vinsælt meðal fjölskyldufólks, starfsmannafélaga og vinahópa. Á hverju ári eru fjölmörg ættarmót haldin í Hraunborgum en þar er sérlega gott útivistarsvæði bæði fyrir börn og fullorðna. Þjónustumiðstöðin er með yfirbyggðum sólpalli þar sem hægt er að slappa af og grilla. Hægt er að leigja pallinn fyrir stærri viðburði.
Svæðið er hugsað sem fjölskyldusvæði og ætlast er til að ró komist á um miðnætti. Aldurstakmark er 25 ára nema sé í fylgd með öðrum fjölskyldum. Fjölskyldufólk er velkomið þó það hafi ekki náð 25 ára aldri.
Leyfilegt er að hafa hunda á tjaldsvæðinu ef þeir eru í bandi.
Þjónustumiðstöðin er opin:
Mánudaga til laugardaga: 10:00 – 20:00
Sunnudaga: 10:00 – 17:00
Verslunarmannahelgin (laugardag til mánudag): 10:00 – 20:00 Þjónustumiðstöðin og tjaldsvæðið er opið frá 23. maí til 31. ágúst 2014

 

Til baka