24. apríl
Velkomin þegar má ferðast
Við í Uppsveitum Árnessýslu viljum bjóða alla hjartanlega velkomna til okkar þegar ferðatakmarkanir minnka. Það er vor í lofti, náttúra, fuglar og mannlíf eru á fullu að undirbúa sig fyrir sumarið sem er á næsta leiti. Við gerum okkar besta eins og hægt er miðað við aðstæður. Hlökkum til að sjá fólk með hækkandi sól.
Það eru þjónustustaðir opnir nú þegar og aðrir á fullu að undirbúa opnun. Allir taka mið af tilmælum Almannavarna, hlýða Víði og gæta öryggis.