2. mars

Nýsköpunardagur 12. mars

 „Frumkvöðladagur Uppsveitanna“.
Verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 13:00-17:00 í Cafe mika Reykholti
Dagurinn er haldinn í samstarfi sveitarfélaganna í Uppsveitum Árnessýslu
og markmiðið er að stuðla að nýsköpun og hvetja hugmyndaríkt fólk til dáða.
Hugað verður að því hvernig má komast frá hugmynd til framkvæmdar.
Stoðkerfið verður kynnt ásamt styrkjamöguleikum og reynslusögum deilt.  
Í lok dagskrár hafa áhugasamir tækifæri til að spjalla við ráðgjafa. 

Dagskrá
Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri hjá Impru/Nýsköpunarmiðstöð Íslands
„Einstök íslensk upplifun“

Þórður Freyr Sigurðsson, atvinnuráðgjafi og verkefnastjóri hjá SASS.
„Stoðkerfi og styrkjamöguleikar“

Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður og verkefnisstjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands og Matís. 
„Nýsköpunarhugsun í námi“

Kaffihlé

Reynslusögur fyrirtækja í Uppsveitum

Umræður um nýsköpun með þátttöku fyrirlesara og fundarmanna

Áhugasamir geta spjallað við ráðgjafa í lok fundar


Vinsamlegast skráið ykkur á fundinn:
netfang asborg@ismennt.is  sími 898 1957

Allir áhugasamir velkomnir. 
Ferðamálaráð Uppsveita Árnessýslu