6. september

Tafir á vegum vegna fjárrekstra

Föstudaginn 8. september og laugardaginn 9. september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra.

Föstudaginn 8 .september 2017:

Biskupstungnabraut F35 , milli Gullfoss og Geysis frá kl. 11:30 til 13:30.

Skeiða- og Hrunamannavegur F30 við Gýgjarhól milli kl. 14:00 og 15:30.

Einholtsvegur F358 frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl. 16:00 fram á kvöld.

Laugardaginn 9. september 2017:

Biskupstungnabraut F35 frá Vatnsleysu að Múla frá kl. 13:00 og fram eftir degi.

Einholtsvegur F358 frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl. 13:00 og fram eftir degi.

 

Fjallskilanefnd Biskupstungna