4. desember

Stefnumótun í ferðaþjónustu föstudag 6. desember á Selfossi

Vinnustofa á föstudaginn í tengslum við stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi til 2025

Stjórnstöð ferðamála, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samband íslenskra sveitafélaga og Samtök ferðaþjónustunnar vinna að stefnumótun fyrir ferðaþjónustu Íslands til 2025

Hafin er vinna við aðgerðabundna stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi til ársins 2025. Verkefnið er sameiginlegt verkefni Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka ferðaþjónustunnar og Stjórnstöðvar ferðamála.

Boðað er til opinnar vinnustofu í tengslum við stefnumótunina.
Fundurinn er haldinn í Tryggvaskála, Selfossi, föstudaginn 6. desember kl 13:00-16:00.

Vinnustofan er opin öllum, og er mikilvægt að fá að borðinu alla hagsmunaaðila í ferðaþjónustunni grasrót, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Á vinnustofunni verða ræddar sviðsmyndir um þróun ferðaþjónustunnar til næstu ára og þær leiðir sem er mikilvægt að fara til að ná framtíðarsýn og leiðarljósi ferðaþjónustunnar um að vera leiðandi í sjálfbærni.

Vinnustofan er um þrjár klukkustundir. Unnið er í hópum að mismunandi meginmálefnum sem varða ávinning heimamanna, upplifun ferðamanna, verðmæta markaði, álagsstýringu og gæði áfangastaða, arðsemi og nýsköpum og loftslagsmál og orkuskipti.

Afurð vinnustofanna er mikilvægt veganesti inn í stefnumótunina. Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka virkan þátt í umræðunum.


Skráning: https://forms.gle/E5XTbuZvscRY21uq9

Sjá viðburðinn inn á Facebook: https://www.facebook.com/events/737275060109652/

 

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að tveimur mikilvægum verkefnum sem stefnumótunin byggir á. Annars vegar er það Jafnvægisás ferðamála þar sem álag á innviði og samfélag hefur verið metið. Hins vegar hefur Framtíðarsýn og leiðarljós fyrir ferðaþjónustu til 2030 verið samþykkt af atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og þar kemur fram að ferðaþjónusta verði leiðandi í sjálfbærni.